Fótbolti

Ajax vill frá Drenthe

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Royston Drenthe í leik með Real Madrid.
Royston Drenthe í leik með Real Madrid. Nordic Photos / AFP
Hollenska úrvalsdeildarfélagið Ajax er sagt áhugasamt að fá Royston Drenthe sem er sagður á leið frá Real Madrid nú í sumar.

Fiorentina er einnig sagt hafa áhuga á Drenthe sem er einn sex Hollendinga í Real Madrid. Fullyrt er að félagið vilji losna við þá alla nú í sumar.

Drenthe kom til Real Madrid frá Feyenoord fyrir tveimur árum síðan en hefur átt erfitt með að aðlagast aðstæðum á Spáni. Reglulega hafa birst fréttir undanfarin ár þess efnis að hann sé á leið frá félaginu.

Drenthe hefur einnig verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×