Fótbolti

Stefán missir af lokaspretti tímabilsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Gíslason.
Stefán Gíslason.

Stefán Gíslason hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að traðka á andstæðingi í leik með Bröndby um helgina.

Bröndby steinlá fyrir FC Kaupmannahöfn, 4-0, í uppgjöri toppliðanna. FCK er með tveggja stiga forystu á Bröndby þegar tvær umferðir eru eftir.

Aganefnd notaðist við sjónvarpsupptöku af atvikinu þar sem dómari leiksins á ekki þegar Stefán traðkaði á Atibe Huthcinson, leikmanni FCK, undir lok leiksins.

Stefán missir því einnig af fyrsta leik næsta keppnistímabils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×