Körfubolti

Garnett missir úr 2-3 vikur

NordicPhotos/GettyImages

Kevin Garnett, framherji Boston Celtics, verður frá keppni með liði sínu næstu tvær til þrjár vikurnar að mati lækna félagsins.

Garnett meiddist á hné í leik Boston gegn Utah í Salt Lake City á fimmtudagskvöldið og fór um stuðningsmenn Boston þegar þeir sáu varnarmann ársins í fyrra haltra af velli.

Nú er hinsvegar ljóst að meiðsli hans eru ekki alvarleg. "Það er bara klaki á hnéð og hvíld á dagskránni hjá Kevin," sagði Danny Ainge forseti félagsins í samtali við Boston Globe.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×