Körfubolti

Pétur þjálfar ekki kvennalið Grindavíkur áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pétur Guðmundsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur.
Pétur Guðmundsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur. Mynd/Stefán

Pétur Guðmundsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Grindavík en þetta staðfesti Óli Björn Björgvinsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar við Vísi nú áðan. Pétur var búin að vera með liðið í eitt ár.

Grindavík endaði í 2. sæti í neðri deild á þessu tímabili og datt síðan út úr sex liða úrslitum í úrslitakeppninni eftir oddaleik á móti KR. Liðið vann 8 af 20 leikjum í deildarkeppninni en Grindavík lék án erlends leikmanns á tímabilinu líkt og KR.

Grindvíkingar eru ekki búnir að finna eftirmann Péturs en sá hinn sami verður áttundi þjálfari kvennaliðsins í Grindavík frá árinu 2002.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×