Fótbolti

Ekkert heyrt frá frönskum félögum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Barcelona.
Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að enn sem komið er hafi ekkert franskt félag sýnt syni sínum áhuga.

Eiður íhugar nú alvarlega að fara frá Barcelona í sumar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann varð spænskur meistari, bikarmeistari og Evrópumeistari með félaginu nú í vor.

"Við höfum heyrt í félögum frá Englandi, Grikklandi, Tyrklandi og Rússlandi - en ekki frá Frakklandi," sagði Arnór í samtali við spænska fjölmiðla.

"En ef stórt félag eins og Bordeaux, Lyon eða Marseille myndi sýna Eiði áhuga væri það eitthvað sem við værum til í að skoða."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×