Spænska landsliðið mun heiðra minningu Jarque Eiríkur STefán Ásgeirsson skrifar 12. ágúst 2009 11:15 Jarque og Eiður Smári Guðjohnsen í baráttu um boltann í leik Espanyol og Barcelona í desember árið 2007. Nordic Photos / AFP
Iker Casillas, markvörður og fyrirliði spænska landsliðsins, hefur greint frá því að leikmenn og þjálfarar liðsins munu heiðra minningu Dani Jarque í vináttulandsleiknum gegn Makedóníu í kvöld. Samkvæmt frétt sem birtist í spænskum fjölmiðlum í dag munu leikmenn og þjálfarar allir klæðast treyjum sem bera nafn og númer, 21, Dani Jarque sem lést vegna hjartaáfalls um síðustu helgi. Hann var fyrirliði Espanyol. Jarque varð á sínum tíma Evrópumeistari U-19 ára liða ásamt nokkrum þeim sem eru nú í A-landsliðinu, til að mynda Fernando Torres, Alvaro Arbeloa og Andres Iniesta. Hann lék einnig með U-21 landsliði Spánar. Fyrir tveimur árum lést annar spænskur knattspyrnumaður, Antonio Puerta. Skömmu síðar mætti spænska landsliðið því íslenska í undankeppni EM 2008 á Laugardalsvelli og vildi heiðra minningu hans með svipuðum hætti og leikmenn vilja gera í kvöld. Hins vegar leyfðist þeim ekki að klæðast eins treyjum á meðan leiknum stóð. Leikmenn urðu því að láta það nægja að klæðast allir treyjum með númeri Puerto á meðan þjóðsöngvar landanna voru fluttir.
Spænski boltinn Mest lesið „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Körfubolti Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“ Sport Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Handbolti Lið Jóhanns Berg kært til FIFA Fótbolti Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Fótbolti Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Sport Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Fótbolti Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Golf Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Enski boltinn Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Lið Jóhanns Berg kært til FIFA Rekinn frá West Ham og Potter að taka við Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casemiro Zidane líklegastur til að taka við af Deschamps Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Deschamps hættir með Frakka eftir HM 2026 Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Sjá meira