Fótbolti

Eiður: Fólk mun aldrei gleyma sigrinum á Real Madrid

AFP

Eiður Smári Guðjohnsen segir að jafnvel þó Barcelona vinni þrennuna í ár, verði ársins 2009 ef til vill helst minnst vegna 6-2 stórsigurs liðsins á Barcelona á Bernabeu.

Barcelona getur tryggt sér frábæra þrennu með sigri á Manchester United í úrslitaleik meistaradeildarinnar í Róm í kvöld, en liðið hefur þegar tryggt sér sigur í deild og bikar á Spáni.

Liðið byrjaði afleitlega á leiktíðinni þar sem það tapaði m.a. opnunarleiknum gegn Numancia sem um daginn féll úr deildinni.

"Við vorum ekki að hugsa um að við myndum vinna tvo, jafnvel þrjá titla eftir þessa byrjun," sagði Eiður Smári í samtali við Sky.

Eiður segir að fjögurra leikja rispa í nóvember og desember hafi orðið til þess að koma liðinu á beinu brautina á ný.

Barcelona lék þá við Sevilla, Valencia, Real Madrid og Villarreal og vann alla fjóra leikina.

"Fólk sá þetta sem prófraun fyrir liðið og allir sáu að liðið var í fínum gír eftir að það vann þessa fjóra leiki gegn liðum sem voru í baráttu um að ná Evrópusæti," sagði Eiður.

Eiður er sannfærður um að sóknartríóið Lionel Messi, Samuel Eto´o og Thierry Henry sé ein helsta ástæða þess að Barcelona hefur verið nær ósigrandi í vetur.

"Þessir þrír hafa verið stórkostlegir á leiktíðinni. Allt liðið hefur spilað vel, en þegar þrír menn eru að skora svona mikið, á liðið alltaf möguleika á að vinna," sagði Eiður.

Hann trúir að stuðningsmenn Barcelona eigi aldrei eftir að gleyma 6-2 stórsigri liðsins á Real Madrid í Madríd.

"Það má vel vera að þessa árs verði minnst sem ársins sem Barcelona vann þrennuna, en þessarar leiktíðar verður alltaf minnst sem 6-2 leiktíðarinnar. Þú verður að vera hérna í borginni til að gera þér grein fyrir því hvaða þýðingu þessi sigur hafði fyrir fólkið. Ekki bara það að fara til Madrid og vinna leikinn - heldur vinna þá á sannfærandi hátt og nánast niðurlægja þá," sagði Eiður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×