Körfubolti

Chandler til Oklahoma Thunder

Tyson Chandler (th) naut góðs af því að spila með Chris Paul
Tyson Chandler (th) naut góðs af því að spila með Chris Paul NordicPhotos/GettyImages

New Orleans Hornets og Oklahoma Thunder í NBA deildinni gerðu með sér leikmannaskipti í NBA deildinni í gærkvöldi. Skiptin eru hrein og klár kreppuaðgerð hjá New Orleans og óttast menn að titilvonir félagsins hafi beðið nokkra hnekki fyrir vikið.

Miðherjinn Chandler hefur verið algjör lykilmaður í liði New Orleans undanfarin ár og til að mynda er liðið aðeins með 50% vinningshlutfall í leikjum þar sem hann hefur ekki verið með í vetur.

New Orleans fær til baka framherjana Joe Smith og Chris Wilcox sem báðir eru með lausa samninga fljótlega, en þó þeir gefi liðinu aukna dýpt í framherjastöðunum, er ljóst að skiptin veikja New Orleans töluvert.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×