Körfubolti

Phil Jackson sektaður fyrir ummæli sín

Phil Jackson.
Phil Jackson. Nordic photos/Getty images

Phil Jackson þjálfari Los Angeles Lakers hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara, rúmar þrjár milljónir króna vegna niðrandi ummæla í garð dómara í fjórða leik Lakers og Orlando í úrslitaeinvíginu um NBA titilinn í körfubolta.

Lakers var einnig sektað um sömu upphæð vegna hátternis þjálfarans.

Fimmti leikur liðanna hefst á miðnætti og með sigri tryggir Lakers sér titilinn í 15 skipti. leikurinn verður beint á Stöð 2 Sport.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×