Fótbolti

Zlatan skoraði fyrir Barca

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan og félagar fagna marki hans í kvöld.
Zlatan og félagar fagna marki hans í kvöld. Nordic Photos / AFP

Zlatan Ibrahimovic skoraði í sínum fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni með Barcelona er liðið vann 3-0 sigur á Sporting Gijon í kvöld.

Ibrahimovic fékk nokkur góð færi í leiknum áður en hann skoraði með skalla seint í leiknum. Hin mörkin í leiknum voru einnig skallamörk en þau skoruðu Bojan Krkic og Seydou Keita.

Lionel Messi, Andres Iniesta og Thierry Henry voru allir fjarverandi í liði Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×