Viðskipti innlent

Færeyjabanki einn á uppleið

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hefur hækkað um 0,96 prósent í dag. Þetta er jafnframt eina hækkun dagsins. Á sama tíma hefur gengi bréfa í Marel Food Systems lækkað um 0,71 prósent og í Össur um 0,41 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan hefur ekkert hreyfst og stendur í 222 stigum en nýja vísitalan hefur hækkað um 0,08 prósent og stendur í 571,5 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×