Fótbolti

Mourinho: Áttum skilið að vinna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ítalska liðið Inter vann ævintýralegan sigur á Dynamo Kiev í Kænugarði í kvöld. Liðið var marki undir þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum.

Sá tími dugði til þess að skora tvö mörk, tryggja Inter sigur og um leið toppsæti riðilsins.

„Við áttum þennan sigur fyllilega skilin. Nú getum við hugsað um að klára dæmið í næstu tveim leikjum," sagði Mourinho brattur eftir leikinn.

„Karakter liðsins breyttist í seinni hálfleik. Liðið brást vel við þeim skilaboðum sem ég kom á framfæri í hálfleik. Menn börðust grimmilega fyrir sínu og allir spiluðu með hjartanu. Þetta var magnað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×