Körfubolti

KR-ingar rifja upp æsispennandi lokamínútur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helga Einarsdóttir var hetja KR í fyrsta leiknum á móti Keflavík.
Helga Einarsdóttir var hetja KR í fyrsta leiknum á móti Keflavík. Mynd/Vilhelm

Annar leikur KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta fer fram í DHL-Höllinni í kvöld. KR vann fyrsta leikinn með minnsta mun í Keflavík, 78-77, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í lokaúrslitin.

KR-ingar hafa sett inn á heimasíðu sína myndband af æsispennandi lokamínútum síðasta leiks. Það var Helga Einarsdóttir sem tryggði KR-liðinu sigurinn með körfu tæpum sex sekúndum fyrir leikslok.

Kesha Watson fékk tækifæri til að tryggja Keflavík sigurinn í sínum fyrsta leik eftir að hún kom til baka en skot hennar geigaði.

KR-konur unnu þarna sinn fyrsta leik í Keflavík síðan 2005 en liðið var búið að tapa tíu leikjum í röð í Toyota-höllinni þar af tveimur þeirra með aðeins einu stigi.

Myndbandið sem nær yfir síðustu þrjár mínútur leiksins í Keflavík á miðvikudagskvöldið má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×