Viðskipti innlent

Talsverð hækkun í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Eimskipi hækkaði um 25 prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 24,25 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa á Marel Food Systems um 12,91 prósent. Bréf Össurar fóru upp um 1,01 prósent og Færeyjabanka um 0,4 prósent.

Einungis gengi bréfa Bakkavarar lækkaði í dag, eða um 0,83 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan rauk upp um 2,47 prósent og endaði í 224 stigum. Nýja vísitalan (OMXI6) hækkaði um 2,69 prósent og endaði í 659 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×