Fótbolti

Robben byrjaður að æfa

Nordic Photos/Getty Images

Hollenski landsliðsmaðurinn Arjen Robben æfði með aðalliði Real Madrid í dag og ætti því að koma til greina í hóp Juande Ramos fyrir stórleikinn gegn Barcelona laugardag.

Robben hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu og búið var að afskrifa hann fyrir El Clasico um helgina. Það eru því aðeins Guti og Wesley Sneijder sem koma ekki til greina í hóp Real fyrir mikilvægasta leik ársins í spænska boltanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×