Enski boltinn

Laporta: Fabregas vill koma til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Nordic Photos / AFP

Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Cesc Fabregas vilji koma aftur til síns gamla félags og að hann sé efstur á óskalista Börsunga í sumar.

Fabregas fór frá Barcelona til Arsenal fyrir sex árum síðan og hefur verið einn besti leikmaður Arsenal á síðustu árum. Hann hefur undanfarið ítrekað verið orðaður við Barcelona en sjálfur segist hann ekki á förum frá Lundúnum.

„Við vitum að hann vill spila með Barcelona. Sem stendur er hann í leiðtogahlutverki hjá Arsenal og mikilvægur leikmaður liðsins. En við viljum allir fá hann til okkar," sagði Laporta í samtali við spænska fjölmiðla.

„Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að fá hann en við berum mikla virðingu fyrir Arsenal. Það verður því ekki auðvelt að ræða þetta mál við félagið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×