Viðskipti innlent

Gengi hlutabréfa Century Aluminum rýkur upp

Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.
Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, rauk upp um 29,38 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Tvenn viðskipti upp á 1,3 milljónir króna standa á bak við viðskiptin.

Þá hækkaði gengi bréfa Marel Food Systems um 2,2 prósent og Bakkavarar um 1,77 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa Hampiðjunnar um 11,67 prósent í einum viðskiptum upp á tæp 300 þúsund krónur.

Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nema 27 milljónum króna í níu viðskiptum. 

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 0,31 prósent og stendur hún í 221 stigi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×