Fótbolti

Kanoute framlengdi við Sevilla

Nordic Photos/Getty Images

Franski markahrókurinn Frederic Kanoute hefur framlengt samning sinn við spænska félagið Sevilla um tvö ár og verður því samningsbundinn félaginu til 34 ára aldurs.

Malimaðurinn hefur gert mjög gott mót hjá Sevilla síðan hann fór til Spánar frá Tottenham árið 2005, en hann hafði verið orðaður við nokkur félög á Englandi að undanförnu.

"Ég vildi ekki fara héðan þrátt fyrir áhuga annars staðar frá. Ég ræddi bara við forráðamenn Sevilla, því það var fyrsti kostur minn," sagði Frakkinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×