Körfubolti

Allen í stjörnuliðið í stað Nelson

NordicPhotos/GettyImages

Skotbakvörðurinn Ray Allen hefur verið valinn inn í lið Austurdeildarinnar fyrir stjörnuleikinn í NBA sem fram fer þann 15. febrúar.

Allen kemur inn í stað leikstjórnandans Jameer Nelson hjá Orlando sem meiddist illa á öxl og verður frá keppni næstu vikurnar.

Þetta er í níunda skiptið sem Allen er valinn í stjörnulið, en hann var reyndar einnig tekinn inn í stjörnuliðið sem varamaður í fyrra eftir að leikmaður datt út vegna meiðsla.

Boston á því þrjá fulltrúa í stjörnuleiknum í ár líkt og í fyrra, þá Allen, Kevin Garnett og Paul Pierce.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×