Fótbolti

Lionel Messi: Vill enda ferillinn í argentínsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi er búinn að spila frábærlega með Barcelona á þessu tímabili.
Lionel Messi er búinn að spila frábærlega með Barcelona á þessu tímabili. Mynd/AFP

Lionel Messi, framherjinn snjalli hjá spænsku meisturunum í Barcelona, ætlar ekki að spila allan ferillinn með Barcelona því hann ætlar að spila síðustu árin sín í boltanum í heimalandinu.

„Ég vil enda ferillinn í Argentínu því það hefur verið drauminn frá því að ég var lítill strákur að spila í argentínsku deildinni. Ég fór á þessa velli þegar ég var yngri og vill fá að kynnast því að spila þar sjálfur," sagði Lionel Messi.

Lionel Messi vildi þó ekkert gefa það upp að hann ætlaði að spila með sínu gamla félagi, Newell's Old Boys, þegar hann snéri aftur heim. „Ég vil bara fá að kynnast því að spila í argentínsku deildinni því það er mín ósk að fá að kynnast ástríðunni í boltanum heima í Argentínu," segir Messi.

Messi segist oft sakna heimaslóðanna. „Það er oft erfitt að vera einn hérna á Spáni þegar fjölskyldan er heima," segir Messi. „Það er kannski meiri friður yfir öllu hér á Spáni en það breytir því ekki að Argentína er Argentína," segir Messi fullur föðurlandsástar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×