Körfubolti

Líkir Chris Bosh við dragdrottningu

Shaquille O´Neal líkir Chris Bosh við dragdrottninguna RuPaul
Shaquille O´Neal líkir Chris Bosh við dragdrottninguna RuPaul Mynd/Netið

Miðherjinn Shaquille O´Neal átti einn besta leik sinn í mörg ár þegar hann skoraði 45 stig og hirti 11 fráköst fyrir Phoenix í sigri á Toronto á föstudagskvöldið.

Kraftframherjinn og landsliðsmaðurinn Chris Bosh hjá Toronto var ekki sérlega hrifinn af leik gamla mannsins og sagði dómara leiksins hafa leyft tröllinu að tjalda full lengi inni í teignum.

O´Neal hefur alltaf haft munninn fyrir neðan nefið og var ekki lengi að svara gagnrýni Bosh í viðtali við Arizona Republic.

"Ég heyrði hvað Chris Bosh sagði og mér þykir þetta stór yfirlýsing, komandi frá RuPaul stóru mannanna í NBA deildinni. Ég mun halda uppteknum hætti þegar ég mæti honum næst - láta hann gefast upp og fara að væla. Það er það sem ég geri," sagði Shaquille O´Neal.

RuPaul er leikari/leikkona og dragdrottning sem gerði garðinn frægan sem söngvari á tíunda áratugnum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×