Sport

Armstrong þurfti tólf skrúfur í viðbeinið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Armstrong hefur verið á sjúkrahúsi síðustu daga.
Armstrong hefur verið á sjúkrahúsi síðustu daga. Nordic Photos/Getty Images

Hjólreiðakappinn Lance Armstrong er búinn að leggjast undir hnífinn eftir að hafa viðbeinsbrotnað illa. Viðbeinið á Armstrong brotnaði í fjóra hluta.

Það þurfti að setja tólf skrúfur í viðbeinið og ætti Armstrong að ná sér að fullu eftir átta til tólf vikur.

Hann hefur þó ekki í hyggju að hvíla svo lengi og ætlar aftur á hjólið eftir nokkra daga. Hann verður einfaldlega að gera það ætli hann sér að vera löglegur í Giro D´Italia-mótinu sem hefst 9. maí.

Armstrong snéri nýlega til baka eftir að hafa verið hættur í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×