Fótbolti

Iniesta vill vinna sexuna aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona, segir að leikmenn liðsins verði að njóta þess að hafa unnið sexuna ótrúlegu í ár en eftir að það komi ekkert annað til greina en að endurtaka leikinn.

„Það sem við höfum upplifað á þessu ári er ótrúlegt og á sér engin fordæmi. Nú verðum við að njóta þess og svo reima á okkur skóna og reyna að gera þetta allt aftur," sagði Iniesta sem er afar ánægður með þjálfarann, Pep Guardiola.

„Titlarnir sex tala sínu máli. Guardiola er afar duglegur þjálfari og það er eðlilegt að titlarnir komi þegar menn leggja hart að sér."

Barcelona á næst leik þann 2. janúar er liðið tekur á móti Villarreal í spænsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×