Viðskipti innlent

Viðskipti með bréf Össurar halda uppi hlutabréfaveltunni

Gervifótur frá Össuri.
Gervifótur frá Össuri.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um sjö prósent eftir fremur dapurt upphafi í Kauphöllinni í morgun. Gengi bréfa Össurar hefur sömuleiðis hækkað, eða um 0,28 prósent.

Á móti lækkaði gengi bréfa í Bakkavör um 0,69 prósent.

Fremur lítil hreyfing er á markaðnum en viðskipti eru fimm talsins upp á 7,7 milljónir króna. Langhæst eru viðskipti með bréf Össurar, eða fyrir 7,5 milljónir króna.

Gengi annarra félaga hefur ekki hreyfst úr stað.

Gamla Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,13 prósent en stendur óbreytt frá í gær í 219 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×