Fótbolti

Ronaldo byrjaður að æfa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo í leik með Real Madrid.
Cristiano Ronaldo í leik með Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Cristiano Ronaldo byrjaði að æfa með Real Madrid á nýjan leik í dag og gæti vel verið að hann geti spilað með liðinu gegn FC Zürich í Meistaradeildinni í næstu viku.

Ólíklegt þykir þó að Ronaldo muni spila með Real gegn Racing Santander í spænsku úrvalsdeildinni um helgina.

Real mætir svo Barcelona í stórslag spænsku úrvalsdeildarinnar um þarnæstu helgi og eru því góðar líkur á því að Ronaldo verði orðinn klár í slaginn þá.

Ronaldo meiddist á ökkla í leik Real gegn Marseille í Meistaradeildinni í lok september en meiðslin tóku sig svo upp í landsleik með Portúgal þann 10. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×