Fótbolti

Real Madrid nálgast Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Real Madrid fagna einu marka sinna í kvöld.
Leikmenn Real Madrid fagna einu marka sinna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Real Madrid vann í dag 4-0 útivallasigur á Sporting Gijon í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og minnkaði þar með forskot Barcelona í tíu stig.

Raul skoraði tvö marka Real Madrid í kvöld, Klaas-Jan Huntelaar og Marcelo eitt hvor.

Þetta var fyrsta mark Huntelaar fyrir Real Madrid síðan hann gekk til liðs við félagið í síðasta mánuði.

Börsungar eru nú með 60 stig eftir 23 leiki en Real Madrid með 50. Sevilla er með 41 stig í þriðja sæti deildarinnar.



Úrslit dagsins
:

Almeria - Valladolid 3-2

Athletic - Recreativo 1-1

Numancia - Mallorca 0-1

Racing - Villarreal 1-1

Sporting Gijon - Real Madrid 0-4

Espanyol - Sevilla 0-2

Atletico - Getafe 1-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×