Skoðun

Mannlegt vald

Vigdís Hauksdóttir skrifar
Ekkert í mannlegu valdi getur bætt fólki það sem gerðist í bankahruninu, var haft eftir sællegum og útiteknum félagsmálaráðherra í fréttum RÚV í byrjun mánaðar. Er það nú svo? Hugsi maður nú aðeins til baka, þá stukku menn til í bankahruninu og tryggðu allar innistæður í bönkum og peningamarkaðssjóðirnir fengu 200 milljarða til að bæta fólki tapið.

Hver var að verki þar? Var það vald Guðs á himnum? Eða kannski flokksbróðir félagsmálaráðherra, fyrrverandi viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson?

Það er vont til þess að hugsa að ráðherra trúi þessari vitleysu í sjálfum sér, en í mót kemur, að það er svo auðvelt að skilja sjálfan sig, þótt maður skilji ekkert annað. Og merkilegt má það heita, að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks skyldi bjarga ákveðnum hluta þjóðarinnar frá efnahagslegu skipbroti, en ekki öðrum. Hvað með þá sem lögðu sparnað sinn í fasteignir? Eigið fé þeirra hefur brunnið upp og stjórnvöld hafa ekki lyft litla fingri þeim til varnar.

Önnur dæmi af sama meiði, mætti taka af töluglögga sællega ráðherranum. Okkur ber niður í umræður á Alþingi 5. desember í fyrra. Ræðumaður er Árni Þór Sigurðsson, þá í stjórnarandstöðu. Árni Þór velti fyrir sér hversu mikið Íslendingar gætu þurft að borga vegna Icesave.

Gellur þá í töluglöggum verðandi ráðherra Árna Páli; „Það getur vel verið að það þurfi ekkert að borga. Það er lágmarkstalan." Árni Þór svaraði að bragði; „Það er afskaplega ósennilegt, háttvirtur þingmaður." Og þarna skeikar ekki nema nokkur hundruð milljörðum, Árna Pál í óhag. Annað dæmi af því hversu næmur Árni Páll er fyrir samtímanum, er það sem eftir honum er haft í helgarblaði Fréttablaðsins í lok maí; „Blessunarlega er það ekki þannig að þorri heimila geti ekki staðið í skilum þótt skuldabyrði hafi aukist. Ef þú horfir á verðtryggðu lánin, þá er næstum enginn að verða fyrir meiri hækkun afborgana en sem nemur fimmtíu þúsund krónum." Vafalítið hefur Árni Páll haft svo lítið á milli handa, að hann muni eitthvað um fimmtíu þúsund „kall". Allt ber hér að sama brunni, skilningsleysið félagsmálaráðherrans er svo yfirþyrmandi að jaðrar við einfeldningshátt, í besta falli.

Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×