Fótbolti

Sevilla sagt hafa áhuga á miðjumanni Brann

Ómar Þorgeirsson skrifar
Erik Huseklepp og Ólafur Örn Bjarnason fagna marki í leik með Brann.
Erik Huseklepp og Ólafur Örn Bjarnason fagna marki í leik með Brann. Scanpix

Spænska félagið Sevilla er sterklega orðað við norska landsliðsmanninn Erik Huseklepp sem leikur með Íslendingaliði Brann í Noregi.

Huseklepp þótti standa sig gríðarlega vel í 4-0 sigri Norðmanna gegn Skotum í undankeppni HM 2010 á dögunum og samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Sevilla að undirbúa kauptilboð.

„Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær Sevilla leggur fram kauptilboð í Huseklepp. Það kemur okkur ekkert á óvart að leikmanninum sé sýndur áhugi," segir talsmaður Brann í samtali við Marca.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×