Körfubolti

Hamar hafði sigur gegn Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ágúst Björgvinsson er þjálfari Hamars.
Ágúst Björgvinsson er þjálfari Hamars.

Hamar vann í dag sigur á Val, 68-55, í síðari leik dagsins í Iceland Express-deild kvenna.

Staðan var jöfn í hálfleik, 38-38, en Hamar tók völdin í þriðja leikhluta og náði þá tíu stiga forystu.

Hamar er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig en Valur á botninum með fjögur.

Stig Vals: Birna Eiríksdóttir 23, Þórunn Bjarnadóttir 15, Berglind Karen Ingvarsdóttir 7, Hrund Jóhannsdóttir 6, Sigríður Viggósdóttir 4.

Stig Hamars: Koren Schram 17, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13, Kristrún Sigurjónsdóttir 12, Fanney Lind Guðmundsdóttir 10, Guðbjörg Sverrisdóttir 6, Sóley Guðgeirsdóttir 5, Íris Ásgeirsdóttir 5.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×