Fótbolti

Valencia mistókst að ná þriðja sætinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexis Ruano, til hægri, og Adian Lopez í baráttunni í kvöld.
Alexis Ruano, til hægri, og Adian Lopez í baráttunni í kvöld. Nordic Photos / AFP

Valencia mistókst að komast upp í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar er liðið gerði markalaust jafntefli við Deportivo La Coruna á útivelli í kvöld.

Fyrir helgina tapaði Sevilla fyrir Getafe á heimavelli og því fékk Valencia kjörið tækifæri í kvöld til að komast upp fyrir Sevilla og saxa á forskot toppliðanna tveggja - Barcelona og Real Madrid.

Úrslit dagsins á Spáni:

Deportivo - Valencia 0-0

Tenerife - Atletico 1-1

Villarreal - Racing 2-0

Valladolid - Sporting 2-1

Malaga - Mallorca 2-1

Espanyol - Almeria 2-0






Fleiri fréttir

Sjá meira


×