Enski boltinn

City sagt hafa boðið 25 milljónir punda í Eto'o

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eto'o, fyrir miðju, fagnar marki í leik með Barcelona.
Eto'o, fyrir miðju, fagnar marki í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Samkvæmt heimildum fréttastofu Sky Sports hefur Manchester City lagt fram tilboð upp á 25 milljónir punda í Samuel Eto'o, leikmann Barcelona.

Eto'o á ekki nema eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona og gæti því farið frítt frá félaginu næsta ár.

Sky Sports fullyrðir enn frekar að á morgun muni umboðsmaður hans tilkynna á blaðamannafundi að hann ætli sér einmitt að klára samninginn sinn við Börsunga.

Því er enn heldur haldið fram að hjá City myndi Eto'o fá 250 þúsund pund í vikulaun og yrði hann þar með hæstlaunaðasti knattspyrnumaður heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×