Körfubolti

NBA í nótt: Anthony með 38 stig í sigri Denver

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carmelo Anthony í leiknum í gær.
Carmelo Anthony í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images

Carmelo Anthony fór á kostum í sigri Denver á Portland í NBA-deildinni í nótt, 106-90, eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.

Leikbannið fékk hann fyrir að neita að koma af velli þegar honum var skipt út af í leik um síðustu helgi. Hann passaði sig á því nú að endurtaka ekki þann leik og bókstaflega hljóp af velli þegar honum var skipt út af.

„Ég er búinn að læra mína lexíu," sagði Anthony sem var reyndar ekki sáttur við að hafa misst af síðasta leik þar sem Denver tapaði fyrir Detroit á útivelli. Þegar skiptingin kom í nótt klöppuðu áhorfendur og George Karl, þjálfari Denver, brosti út í annað.

„Mér fannst þetta nokkuð fyndið," sagði Karl. Myndbandsupptöku af atvikinu má sjá hér.

Brandon Roy var með 22 stig fyrir Portland og LaMarcus Aldrige nítján en sigur Denver var nokkuð öruggur.

Í hinum leik næturinnar vann New Orleans sigur á Dallas, 104-88. Chris Paul fór á kostum í leiknum í nótt og skoraði 27 stig og gaf fimmtán stoðsendingar.

Áhorfendur og aðrir leikmenn trúðu svo varla eigin augum þegar hann rak boltann í gegnum fætur Jason Terry á fullri ferð áður en hann gaf boltann á Rasual Butler sem skoraði með troðslu, eins og sjá má hér.

„Ótrúlegt. Þetta er eitthvað það allra flottasta sem ég hef séð á ævi minni og hann gerði þetta gegn NBA-leikmanni. Ég var á miðjum vellinum og bara stoppaði. Ég gat ekki klárað sóknina því ég hafði aldrei séð annað eins," sagði Tyson Chandler, liðsfélagi Paul.

„Ég þurfti að hugsa fljótt," sagði Paul um atvikið. „Það var annað hvort að hlaupa í gegnum hann eða að kasta boltanum á milli fótanna hans og ná honum svo hinum megin. Ég hef gert þetta á æfingum áður og þetta var það eina sem mér datt í hug með svo skömmum fyrirvara."

David West skoraði nítján stig og Butler átján. Dirk Nowitzky skoraði 27 stig fyrir Dallas og Jason Kidd þrettán.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×