Fótbolti

Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic talast ekki við

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic og Lionel Messi.
Zlatan Ibrahimovic og Lionel Messi. Mynd/AFP

Sænska sjónvarpsstöðin TV4 greindi frá því í gær að stórstjörnur Barcelona-liðsins, Zlatan Ibrahimovic og Lionel Messi talist ekki lengur við, hvorki innan né utan vallar.

Jesper Hussfeldt og Pontus Kåmark lýstu El Clasico leiknum í gær á TV4 og sögðu þá frá samskiptaleysi stórstjarnanna. Samkvæmt þeirra heimildum er aðalástæðan sú að Lionel Messi finnst sér vera ógnað af Zlatan og hann fái ekki lengur að spila sinn leik.

Flestum finnst örugglega kaup Barcelona á Zlatan Ibrahimovic hafa heppnast fullkomlega ef marka má frábæra byrjun hans inn á vellinum en það mat gæti breyst komi það í ljóst að Svíinn og Argentínumaðurinn geti ekki unnið saman.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×