Viðskipti innlent

Danir kaupa hlutabréf í Össuri

ATP-Arbejdmarkedets Tillægspens, lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna í Danmörku, einn stærsti lífeyrissjóður landsins, keypti í gær öll hlutabréf  Jóns Sigurðssonar, forstjóra félagsins.

Jón seldi megnið af hlut sínum í fyrirtækinu í síðustu viku en átti eftir 7,5 milljónir hluta.

Lífeyrissjóðurinn danski á nú 5,24 prósent í Össuri og er fjórði stærsti hluthafi félagsins.

Stöð 2 hafði eftir Lars Christensen, yfirmanni greiningardeildar Danske Bank, í kvöld enga fjárfesta þora að fjárfesta á Íslandi þar sem gjaldeyrishöftin hér komi í veg fyrir að þeir geti flutt fjármagn úr landi aftur.

Þá sagði hann gjaldeyrisfrumvarpið, sem samþykkt var á Alþingi í gær vera áhyggjuefni. Útflutningsfyrirtæki muni alltaf finna leið framhjá lögunum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×