Enski boltinn

Messi spenntur fyrir Englandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi fagnar marki í leik með Barcelona.
Lionel Messi fagnar marki í leik með Barcelona. Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, hefur viðurkennt að hann sér fyrir sér að reyna fyrir sér á Englandi í framtíðinni.

Messi er 21 árs gamall og gegnir lykilhlutverki með Barcelona sem mætir Chelsea í Lundúnum í kvöld. Þetta er síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en þeirri fyrri lauk með markalausu jafntefli í Barcelona.

„Knattspyrnan á Englandi er frábær, rétt eins og á Spáni," sagði Messi. „En hef komið mér vel fyrir og líður vel hjá Barcelona. Ég veit að enska úrvalsdeildin er frábær deild en Barcelona er stór hluti af mínu lífi og ég er ekki að hugsa um neitt annað."

„En það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×