Körfubolti

LeBron hættir að nota númerið 23 til að heiðra Jordan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron ætlar að leggja þessari treyju.
LeBron ætlar að leggja þessari treyju.

LeBron James vill að allir leikmenn NBA-deildarinnar sem noti númerið 23 hætti að nota það til þess að heiðra Michael Jordan.

Sjálfur hefur LeBron spilað í treyju númer 23 síðan hann var í grunnskóla. James hefur ákveðið að spila í treyju númer 6. Hann bar það númer með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum.

James ætlar að standa fyrir þessu átaki í vetur og verður áhugavert að sjá hvernig aðrir leikmenn í númerinu 23 taka í hugmyndina.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×