Fótbolti

Pique: Finn til með fyrrum félögum mínum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pique fagnar.
Pique fagnar. Nordic Photos/Getty Images

Gerard Pique sagði það afar sérstaka tilfinningu að vinna Meistaradeildina með félaginu sem hann hefur alla tíð stutt. Hann fann einnig til með fyrrum félögum sínum í Man. Utd en hann fór frá félaginu síðasta sumar.

„Þetta var afar sérstakt kvöld. Við áttum þetta skilið því við spiluðum virkilega vel. Barcelona hefur verið mitt lið frá því að ég var strákur og það var frábært að vinna titilinn með félaginu," sagði Pique skælbrosandi en hann átti flottan leik í vörninni.

„Ég finn til með fyrrum félögum mínum því þeir eru góðir vinir mínir og það er ekki gaman að horfa upp á þá tapa leik. Að sama skapi er ég mjög ánægður fyrir mína hönd.

„Ég vissi alltaf að það hefði verið rétt hjá mér að koma hingað. Þetta er frábært lið og það hefur verið einstök upplifun að taka þátt í þessu draumatímabili okkar," sagði Pique.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×