Sport

Læknar vöktu Albrecht úr dái

NordicPhotos/GettyImages

Svissneski skíðamaðurinn Daniel Albrecht var í dag vakinn upp úr þriggja vikna löngu dái eftir að hann datt illa á æfingu í síðasta mánuði.

Svissneska skíðasambandið tilkynnti í dag að ástand Albrecht hefði náð sér það mikið að læknum hefði þótt ráðlegt að vekja hann og taka hann úr öndunarvél.

Talsmaður sjúkrahússins segir að skíðamaðurinn sé vaknaður úr dáinu en hafi enn ekki talað og enn sé of snemmt að segja til um hvort hann sé kominn til fullrar meðvitundar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×