Fótbolti

FC Bayern í sögubækurnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Bayern skemmtu sér konunglega í kvöld
Leikmenn Bayern skemmtu sér konunglega í kvöld Nordic Photos/Getty Images

Stuðningsmenn FC Bayern eiga eflaust seint eftir að gleyma slátruninni á Sporting Lissabon í kvöld. Bayern vann 7-1 í kvöld og 0-5 í Portúgal. Það gerir 12-1 samanlagt sem eru lygileg úrslit í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Þessi ellefu marka munur er sá mesti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar frá upphafi. Gamla metið átti Lyon sem sló Werder Bremen úr keppninni 10-2 samanlagt árið 2005.

5-0 samanlagður sigur Liverpool á Real Madrid kemst í fjórða sæti á þessum lista ásamt þremur öðrum rimmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×