Fótbolti

Ibrahimovic fór á kostum á fyrstu æfingunni með Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic hefur þurft að sitja á bekknum alla Bandaríkjaferðina hjá Barca.
Zlatan Ibrahimovic hefur þurft að sitja á bekknum alla Bandaríkjaferðina hjá Barca. Mynd/AFP

Zlatan Ibrahimovic fékk að taka þátt í sinni fyrstu æfingu með Barcelona í gær eftir að hafa farið aðgerð á hendi vegna meiðsla sem hann varð fyrir í síðasta leiknum með Inter. Ibrahimovic tók þátt í stærstum hluta æfingarinnar og fór á kostum á skotæfingunni.

Barcelona er enn í æfingaferð sinn til Bandaríkjanna og æfingin í gær fór fram á æfingavelli University of Washington í Seattle.

Í lok æfingarinnar var skotæfingin hjá sóknarmönnum liðsins og þar fengu liðsfélagar Zlatan að kynnast því hversu magnaður hann er fyrir framan markið.

Ibrahimovic skoraði 9 mörk úr 10 tilraunum og notaði til þess allskonar brellur og gabbhreyfingar þannig að Valdes átti oft litla möguleika í markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×