Horfir til betri vegar hjá Stjörnunni 8. janúar 2009 18:00 Úr leik með Stjörnunni í vetur.
Það birtir til hjá Stjörnunni í Garðabæ sem hefur fengið nýjan styrktaraðila í handboltanum. Auk þess ætla bæjaryfirvöld að hlaupa undir bagga með skuldum handknattleiksdeildar félagsins. Fjárhagsvandi handknattleiksdeildarinnar var í umræðunni í desember en þá var leikmönnum tilkynnt að ekki væri hægt að standa við launagreiðslur. Það voru því gleðitíðindi þegar Tryggingamiðstöðin ákvað í vikunni að gera þriggja ára styrktarsamning við Stjörnuna enda ekki hlaupið að því að að fá slíka samninga nú á dögum. Þór Jónsson, formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, segir að þrátt fyrir þetta og niðurskurð á rekstri deildarinnar vanti enn nokkuð upp á til að endar nái saman. Þetta þýði ekki að hægt verði að greiða laun aftur. Snorri Olsen, formaður Stjörnunnar, segir styrk bæjarins nema um 100 milljónum króna á þessu ári rétt eins og í fyrra. Eðlilega fari aðeins hluti af honum í handknattleiksdeild félagsins sem hafi þurft að afskrifa háar fjárhæðir þegar forsendur brustu fyrir greiðslu styrktarsamninga. Snorri segir að bærinn hafi bætt við sjö milljónum til að dekka gamlar skuldir félagsins. Fyrirsjáanlegt tap á rekstri handknattleiksdeildarinnar sé 15-20 milljónir, en hann býst við að þessar skuldir verði fullgreiddar á árinu. Aðrar deildir séu skuldlausar. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að að bókfært tap handknattleiksdeildar á síðasta ári hafi numið 43 milljónum króna.
Olís-deild karla Mest lesið Dukic harðorður gagnvart CrossFit: Fyrirtæki sem virðir ekki mannslíf Sport Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ Körfubolti Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Íslenski boltinn Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Fótbolti NFL varar leikmenn deildarinnar við glæpahópum Sport „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Dagskráin: Stærsta boxmót ársins á Íslandi Sport Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Handbolti Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Sjá meira