Hertoginn af York opnaði Banque Havilland 1. október 2009 10:56
Andrew prins, Hertoginn af York, opnaði Banque Havilland formlega í Lúxemborg í dag. Bankinn hét áður Kaupthing Bank Luxembourg en Rowland fjölaskyldan festi kaup á honum eftir endurskipulagingu starfseminnar í kjölfar bankahrunsins s.l. haust. Í tilkynningu frá Banque Havilland segir Jonathan Rowland að hann telji bankann spennandi tækifæri. „Rekstur bankans mun verða íhaldssamur eins og ætíð hefur verið hjá upp á borðinu hjá fjölskyldunni," segir Rowland. Magnús Guðmundsson forstjóri Banque Havilland þakkaði öllum þeim sem komu að lausninni fyrir þetta fyrrum dótturfélag Kaupþings og hann þakkaði Rowland fjölskyldunni sérstaklega fyrir að hafa fjárfest í bankanum. Andrew prins ávarpaði einnig gesti en hann er sérstakur sendifulltrúi bresku alþjóðaviðskipta- og fjárfestingastofnunarinnar. „Ég fagna því frumkvæði breskrar fjölskyldu að taka áhættu af því að fjárfesta utan Bretlands," segir Andrew. Hertoginn lét þess einnig getið að hann hafi áður hitt og unnið með Rowland fjölskyldunni vegna stöðu sinnar. Meðal gesta við opnun bankans má nefna fjármálaráðherra Lúxemborgar, sendiherra Breta í Lúxemborg og Stefán Hauk Jóhannesson sendiherra Íslands í Belgíu.
Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira