Körfubolti

NBA í nótt: Howard öflugur í sigri Orlando

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dwight Howard í leiknum í nótt.
Dwight Howard í leiknum í nótt. Mynd/AP
Orlando Magic vann í nótt góðan sigur á Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfubolta, 93-76.

Dwight Howard fór mikinn í leiknum. Hann var alls með 22 stig og sjö fráköst. Vince Carter kom næstur með 21 stig.

Atlanta hefur byrjað mjög vel í deildinni í haust en þetta var fyrsti tapleikur liðsins á heimavelli í vetur. Áður hafði liðið unnið sjö heimaleiki í röð.

Orlando tapaði hins vegar naumlega fyrir Miami í gær en þetta var annars sjötti sigur liðsins í síðustu sjö leikjum þess.

Atlanta komst mest fjórtán stigum yfir í leiknum en Orlando komst á 25-10 sprett í þriðja leikhluta og náði yfirhöndinni.

Hjá Orlando var Joe Johnson stigahæstur með 22 stig.

Einn annar leikur var í NBA-deildinni í nótt. Utah vann Chicago, 105-86.

Carlos Boozer skoraði 28 stig fyrir Utah sem hafði yfirhöndina allan leikinn. Luol Deng var stigahæstur leikmanna Chicago með 26 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×