Fótbolti

Messi sá um Atletico

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eitt af mörkum Messi í kvöld kom úr vítaspyrnu.
Eitt af mörkum Messi í kvöld kom úr vítaspyrnu.

Argentínumaðurinn Leo Messi skoraði öll þrjú mörk Barcelona sem vann Atletico Madrid 3-1 á útivelli í Konungsbikarnum í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar.

Það kom ekki að sök þó Börsungar hafi hvílt nokkra af sínum helstu leikmönnum í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var meðal þeirra sem fengu hvíld í leiknum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×