Aston bílaframleiðandinn gæti lent í vanda Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. janúar 2009 10:00 Það hefur ekki hver sem er efni á að fjárfesta í Aston.
Forsvarsmenn Aston Martin bílaframleiðandanna hafa viðurkennt að þeir geti hugsanlega ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart bönkunum á þessu ári í þeim ólgusjó sem fjármálakerfið er í. Þótt David Richard, stjórnarformaður fyrirtækisins, viðurkenni þetta, segir hann hins vegar í samtali við The Sunday Times að Aston sé ekki í neinum bráðum fjárhagsvanda. Hann fullyrðir jafnframt að fyrirtækið sé betur í stakk búið til að fást við niðursveifluna í hagkerfinu en keppinautarnir. Fyrirtækið var keypt út úr Ford samsteypunni árið 2007 á tæpar 480 milljónir punda með stuðningi kúveiskra fjárfesta. Talið er að ef fjármálakreppan haldi áfram þurfi hluthafar að leggja meira hlutafé inn í félagið. Um 600 störf hjá fyrirtækinu hafa verið lögð niður og framleiðsla dregin saman vegna samdráttarins í efnahagslífinu.
Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Íhuga hærri tolla á alla Facebook hættu að beina auglýsingum að konu eftir að hún lögsótti Meta Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Setur háa tolla á Evrópu Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Sjá meira