Fótbolti

Raul skoraði í 500. leiknum

AFP

Real Madrid komst í kvöld í annað sæti spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 3-0 útisigur á Mallorca. Arjen Robben, Sergio Ramos og Raul skoruðu mörk Madridarliðsins, en sá síðastnefndi var að spila sinn 500. leik fyrir Real í kvöld.

Barcelona er á toppi deildarinnar með 44 stig og mætir botnliði Osasuna í kvöld. Real er í öðru sæti með 35 stig líkt og Sevilla sem vann Deportivo 3-1 í gær.

Valencia er í fjórða sætinu eftir 3-3 jafntefli við Villarreal í gær.

Atletico gerði í buxurnar á heimavelli gegn Bilbao í dag og tapaði 3-2 eftir að hafa komist yfir í leiknum. Manice var rekinn af velli í síðari hálfleik hjá Atletico og áhorfendur heimtuðu höfuð Javier Aguirre þjálfara.

Atletico er í fimmta sæti með 30 stig en hefur tapað þremur leikjum á einni viku. Liðið er aðeins á undan Villarreal og Deportivo á markamun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×