Körfubolti

Nowitzki hélt lífi í Dallas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dirk Nowitzki.
Dirk Nowitzki. Nordic Photos/Getty Images

Þjóðverjinn Dirk Nowitzki sá til þess að Dallas er enn á lífi í úrslitakeppni NBA. Hann skoraði 44 stig í 117-119 sigri á Denver. Staðan í rimmunni er því 3-1 fyrir Denver.

Nowitzki skoraði 19 af stigum sínum í fjórða leikhluta.

„Þetta var ótrúlegur leikur. Við vorum undir allan leikinn en náðum að koma til baka og klára dæmið en það höfum við einmitt gert í allan vetur. Nú förum við aftur til Denver þar sem við munum selja okkur dýrt," sagði Nowitzki eftir leikinn.

Carmelo Anthony var sprækastur í liði Denver og skoraði 41 stig sem er hans besti árangur í úrslitakeppninni. Það dugði þó ekki til sigurs að þessu sinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×