Körfubolti

Iceland Express-deild kvenna: Hamar byrjar vel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ágúst Björgvinsson stýrir liði Hamars. Stelpurnar hans spiluðu vel í kvöld.
Ágúst Björgvinsson stýrir liði Hamars. Stelpurnar hans spiluðu vel í kvöld.

Keppni í Iceland Express-deild kvenna hófst í kvöld með þremur leikjum. Hamri er spáð góðu gengi í vetur og Hamarsstelpur sýndu í kvöld að það er ekki að ástæðulausu.

Þær rúlluðu þá yfir Keflavík, 82-62, á heimavelli sínum í Hveragerði. Fanney Guðmundsdóttir fór á kostum í liði Hamars og skoraði 22 stig.

Í hinum leikjum kvöldsins vann Snæfell óvæntan útisigur á Val, 59-63, og KR rúllaði yfir Njarðvík, 99-51.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×