Körfubolti

Barkley laus úr steininum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Barkley er eflaust feginn að vera laus úr steininum, eða tjaldinu réttara sagt.
Barkley er eflaust feginn að vera laus úr steininum, eða tjaldinu réttara sagt. Nordic Photos/Getty Images

Charles Barkley losnaði úr fangelsi í dag eftir þriggja daga vist í steininum. Fangelsisdóminn fékk hann fyrir að aka drukkinn undir stýri.

Barkley yfirgaf fangelsið út um bakdyr og slapp þar með við hóp blaðamanna og ljósmyndara sem ætluðu að taka á móti honum.

Fangelsið sem Barkley var í þykir afar sérstakt enda gista fangarnir í tjöldum. Hann fékk sitt eigið tjald af öryggisástæðum og farið var með mat til hans svo hann þyrfti ekki að eiga neitt samneyti við hina fangana.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×