Fótbolti

Numancia skiptir um þjálfara

Leikmenn Numancia hafa ekki gefið margar spaðafimmur í vetur
Leikmenn Numancia hafa ekki gefið margar spaðafimmur í vetur AFP

Spænska liðið Numancia hefur rekið þjalfara sinn Sergio Kresic og ráðið Jose Rojo Martin í hans stað.

Nýliðar Numancia eru í næstneðsta sæti spænsku deildarinnar en Kresic tók við liðinu síðasta sumar. Liðið tapaði fimmta leiknum í röð gegn Mallorca um síðustu helgi.

Fyrsti leikur Martin í þjálfarastólnum verður botnslagur við Osasuna á útivelli á sunnudaginn, en Osasuna er einu stigi og tveimur sætum fyrir ofan Numancia í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×